Þessi vötn eru í Hrófbergshreppi í Strandasýslu.
Hrófbergsvatn er 0,27 km², mjög djúpt og í 161 m hæð yfir sjó. Fitjavatn er 0,1
km², grunnt og í 166 m hæð yfir sjó. Vötnin eru tengd með læk.
Umhverfið þykir mjög fagurt og vel gróið. Búseta var við
Fitjavatn. Mikið er af góðri bleikju í vötnunum, 1-3 pund, og áður var þar jafnan
veitt í net. Vötnin voru gjöfult forðabúr fyrir fólkið. Helst er beitt flugu og
spón.
Vegalengdin frá Reykjavík er 285 km um Hvalfjarðargöng og 11km frá
Hólmavík.