|
Tínist til á heiðalöndum uppi af Húnaflóa og fær auk þess
talsvert vatn úr Miklagili, sem kemur úr Snjófjöllum. Hrútan er góð laxveiðiá sem
gefur venjulega á bilinu
200 til 300 laxa á sumri, en veitt er á 2-3
stangir. Veruleg sjóbleikjuveiði í ánni neðanverðri er góður bónus. Síká er vatnslítil
og á sér uppruna á svipuðum slóðum og Hrútan. Aðeins er veitt á flugu á
svæðinu og er hún ein fjögurra laxveiðiáa á Íslandi þar sem aðeins fluga er
leyfð, hinar eru Vatnsdalsá, Straumfjarðará og Haffjarðará. Gott veiðihús, þar
sem menn sjá um sig sjálfir, er við ána, en leigutaki er fyrirtækið
Strengir.
Laxveiðin i
Hrútafjarðarará og Síká 2004 fór yfir 600
laxa með 3
stöngum á dag!!!
(Mikil uppsveifla síðustu ára)
Sjá: Lokatölur
 |