|
Lítil bergvatnsá sem fellur í Þjórsá vestanverða skammt frá
Árnesi. Veitt er á tvær stangir og er veiðin svona 50
til 100 fiskar, nær allt haustveiði. Umhverfi
hennar er ægifagurt, útsýni yfir Þjórsá og
iðjagrænt landbúnaðarhérað. Skammur vegur er
þaðan til Gaukshöfða og Þjórsárdals. Sagt er að
Þjórsárdalur hafi verið í byggð frá landnámi til stórgoss Heklu árið
1104, þegar byggðin eyddist næstum alveg í dalnum. Þjóðveldisbærinn var
reistur þar og vígður árið 1974 á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar og er
opinn almenningi á sumrin.
Gott hús fylgir veiðiskapnum.
 |