|
Kelduá er dragá í Fljótdalshreppi í Norður-Múlasýslu.
Upptökinn eru í Kelduárvatni við Geldingafell, austan Eyjabakkajökuls. Fellur hún
fyrst um heiðarlönd og síðan um Suðurdal í Fljótsdal allt til botns Lagarfljóts.
Akfært er meðfram mestum hluta árinnar. Í Kelduá
er mikið af fiski, bæði bleikja og urriði, sem oft er mjög vænn. Veiðistaðirnir
eru margir og góðir í ægifögru umhverfi. Fyrr á tímum varð eitthvað vart
ókennilegra fiska í Kelduá, var það hald fróðra manna að vera mundu ungar ormsins
í Lagarfljóti. Eigi hafa þeir sést lengi og ekki eru til myndir til staðfestingar.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 735 km um Suðurlandsveg og um 40 km frá
Egilsstöðum. |