|
Kirkjufellsvatn er austan Kirkjufells (964m) og úr því fellur
Kirkjufellsós til Tungnár, en við hann eru sýslumörk Rangárvalla- og V.-Skaftafellssýslna.
Vatnið er 0,9 km² og í 573 m hæð yfir sjó. Það er skammt sunnan Landmannaleiðar
og greiðfært að því.
Umhverfið er nokkuð gróið og mjög fagurt.
Í vatninu var einungis urriði en nú orðið
er miklu meira af bleikju.
Talið er að þessi fiskur komi úr Tungná.
Hann var miklu stærri og vænni fyrrum, þegar meira var veitt. Lítill
veiðiskúr er austan við vatnið og ekki er langt í annan lítinn skála í
Kýlingum, sem heitir Höll. Sunnan og vestan vatnsins eru friðlýst svæði.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b 190 km.
Veiðileyfið gildir fyrir öll vötnin
að Fjallabaki:
 |