|
Þessar nágrannaár gefa ekki mikið en samt koma nokkrir tugir laxa upp
úr þeim á góðri vertíð. Þær eru vestast á Norðurlandi vestra, norðan
Prestbakka, litlar að vexti, renna út í vestanverðan Hrútafjörð og þægilegt að
komast að þeim.
Hrútafjörður er u.þ.b. 35 km langur og fékk nafn
sitt af tveimur hrútum, sem stóðu í fjörunni, þegar einn landnámsmanna kom
siglandi. Hann nefndi fjörðinn eftir þeim. Á þessu svæð er fjöldinn allur af
góðum laxveiðiám, s.s. Hrútafjarðará og Síká og Laxá í Dölum. Veiðihús eru
við báðar árnar og veiðimennirnir sjá um sig sjálfir. Árnar eru eingöngu leigðar
til staðarmanna.

Krossá

Hrofá |