|
Langavatn í Skagahreppi í A-Húnavatnssýslu
er stærsta stöðuvatnið á vestanverðum Skaga, norðan
Skagastrandar og austan Hofs. Það
er 3,5 km², grunnt og í 207 m hæð yfir sjó.
Fjallabaksá rennur í suðurenda þess en frá því rennur
Langavatnsá gegnum Skjaldbreiðavatn, þar sem veiðileyfi eru ekki seld almenningi.
Neðst heitir áin Fossá og hún
steypist fram af
Króksbjargi í sjó fram. Bílfært er að vatninu, en ella verður að ganga 5 km.
Mikið er af góðum fiski í vatninu, bæði urriði og bleikja, 1-3 pund.
Hægt er að aka að vestanverðu
Langavats um vegaslóð frá Steinnýrarstöðum á 4x4 bílum
Svefnpokagisting er að fá í Skagabúð.
S: 452-2745.
Vegalengdin frá Reykjavík er 324 km (42 km
styttri um Hvalfjarðargöng) og 15 km frá
Skagaströnd.
 |