|
Fremur vatnslítil á, sem kemur upp í Laugarbólsvatni og fellur út
í Ísafjarðardjúp. Hún er og stutt en þó veidd með 2-3 dagstöngum. Laugardalsá er
afgerandi
besta laxveiðiá Vestfjarða, sem segir þó lítið,
því fáar laxveiðiár eru á svæðinu. Áin gefur þó yfirleitt milli 200 og 300 laxa
á sumri og á góðum árum hér áður fyrr varð sumaraflinn oft mun meiri. Gott
veiðihús er við ána og þar hugsa menn um sig sjálfir. Talað er um efri
ána, sprænu, sem fellur frá Efstadalsvatni til Laugarbólsvatns og þar veiðist
stöku sinnum lax. Vænn urriði er þó tíðari afli á þeim slóðum.
Sjá lokatölur
Vegalengdin frá Reykjavík til
Laugabóls er um 395 km og 123 km frá Ísafirði.
 |