|
Lönguvötn eru í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadalssýslu.
Þau eru allmörg og aðskilin af mjóum gröndum. Samanlögð stærð þeirra er 0,48
km² og þau eru í 378 m hæð yfir sjó. Mesta dýpi er 5 m. Aðrennsli ofanjarðar er
ekki sjáanlegt, en lækur rennur frá þeim til Laxár.
Það má skrönglast á jeppum 5-6 km leið til
vatnanna frá þjóðvegi. Í vötnunum er vænn urriði, allt að 9 pund, meðalþyngd
2-3 pund. Veiði í þessum vötnum er talsvert eftirsótt og fjöldi stanga
er ekki takmarkaður.
Eigendur vatnanna stunda ekki netaveiði í þeim, því þeim
nægir Oddastaðavatn til þess.
Vegalengdin frá Reykjavík er
u.þ.b. 123 km um Hvalfjarðargöng. |