|
Selvatn,
Rangatjarnir,
Álftavatn,
Skjaldbreiðarvatn,
Heytjörn
og Urriðavatn eru almennt nefnd Mallandsvötn. Veiðileyfi
eru seld að Mallandi. Þau gefa vænan fisk, urriða og
bleikju, allt að 4 pundum. Veiðitíminn er allur
sólarhringurinn frá byrjun júní fram í ágúst. Náttúra
Skaga, fuglalíf og áhugaverðir staðir, eru ókeypis bónus. Vegspottarnir
að vötnunum eru fólksbílafærir.
Félagsheimilið Skagasel býður gistingu á sumrin.
Stuttar leiðir eru til annarra gististaða á Blönduósi,
Skagaströnd og Sauðárkróki. |