|
Mývatn er 36,5 km². Það er í 277 m.y.s., mjög vogskorið og
með rúmlega 40 eyjum og hólmum. Mesta náttúrulegt dýpi er 4,5 m og víða er mun
grynnra. Mun dýpra er orðið, þar sem kísilþörungum hefur verið dælt úr vatninu.
Silungsveiði er meiri í Mývatni en nokkru öðru vatni landsins og fiskarnir geta
orðið allt að 20 pund.
Veiði er stunduð í net frá öllum bæjum við
vatnið og á veturna er dorgað í gegnum ís. Ekkert vatn í heiminum er þekktara fyrir
fuglalíf en Mývatn. Vatnið er á landssvæði, sem er í regnskugga Vatnajökuls,
þannig að þar er tiltölulega þurrt og hlýtt á sumrin og úrkomulítið og kalt á
veturna. Sáralítil stangaveiði er í vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er 488 km um
Hvalfjarðargöng.
 |