|
Þessi vötn eru í
Ögurhreppi í N.-Ísafjarðarsýslu. Neðravatn er i 40 m hæð
yfir sjó, 0,34 km². Efravatn er miklu minna og í 280 m hæð
yfir sjó. Í því er fiskur en lítið veitt. Ögurá rennur í
gegnum bæði vötnin niður í Ögurvík. Þótt fiskur væri í
Öguránni, voru vötnin talin fisklaus. Árið 1951 var
urriðaseiðum úr ánni sleppt í vötnin en ekki athugað um
árangurinn fyrr en árið 1980.
Þá var lagt net í
Neðravatn og það fylltist strax af fiski, hinn stærsti 7
pund og hinn minnsti 1½ pund. Jeppafært er að Neðravatni
vestanverðu. Umhverfið er fagurt og grösugt. Þar var heyjað
fyrrum. Ögur er frægt höfuðból. Þar átti heima þórdís sú, er
Þormóður Kolbrúnarskáld sat á tali við. Einn frægasti
höfðingi, er þar hefur setið, var Ari sýslumaður, sá er kom
á herskyldu á Íslandi til varnar ránskap erlendra sjómanna.
Á Garðstöðum bjó Galdra-Leifi. Margar kátlegar frásagnir eru til um
samskipti hans við Ara sýslumann. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b.
358 km um Hvalfjarðargöng og 118 km frá Ísafirði. |