|
Ódáðavötn
eru tvö, u.þ.b. 2 km2, vogskorin með mörgum hólmum. Gömul leið lá
yfir kíl, sem tengir vötnin. Sagan segir, að veiðimenn úr Skriðdal
hafi setið þar fyrir ferðamönnum og drepið þá sér til fjár. Þessi
leið var gjarnan farin milli Fljótsdals og Djúpavogs allt til
áratugarins 1870-1880. Öxará fellur úr vötnunum niður á Öxi og út
í Víðigróf í Skriðdal til Skriðuvatns. Úrrennsli vatnsins heitir
Múlaá, sem sameinast Geitdalsá utan Þingmúla og þaðan heitir áin Grímsá.
Haustið 1964 var gerð stífla í Öxará rétt neðan vatnanna til
vatnsmiðlunar fyrir Grímsárvirkjun. Þá kom í ljós hleðsla þvert
yfir vatnið, þar sem það var mjóst. |