|
Ólafsfjarðará skiptist í fimm tveggja
stanga svæði. Mest er um sjóbleikju en einnig slangur af staðbundnum
urriða. Veiðitímabilið í ánni er frá 15. júlí til 30. september. Á
svæðum 3, 4 og 5 er leyfð veið með flugu allt tímabilið og maðki til 20.
ágúst.
Ólafsfjarðarvatn sem er 2,25 km² og mest 10 m djúpt.
Allgóð silungsveiði er í vatninu en þar er frí
stangveiði fyrir alla í boði bæjarfélagsins.
Gistimöguleikar eru
allmargir eins og sést í
ferðavísinum.
Vegalengdin frá Reykjavík er 414 km um Hvalfjarðargöng og 62 km frá
Akureyri. |