|
Ólafsfjarðarvatn er 2,25 km² og mest 10 m djúpt. Allgóð
silungsveiði er í því. Þar er helst sjóbleikja og staðbundinn urriði. Dorgveiði
er þar frá febrúar unz ísa leysir. þar fara gjarnan fram dorgveiðimót, enda eru
Ólafsfirðingar mjög ötulir dorgveiðimenn.
Í mestu stórstraumsflóðum streymir sjór inn í
vatnið, þannig að það er salt við botninn. Þar veiðast fiskar, sem ella lifa í
sjó, s.s. marhnútur, koli, þorskur, ufsi og jafnvel síld.
Frí
stangveiði er í Ólafsfjarðarvatni
í boði bæjarfélagsins.
Vegalengdin frá Reykjavík er 414 km um
Hvalfjarðargöng og 62 km frá
Akureyri.
 |