Prestbakkaá er lítil tveggja stanga á. Við hana stendur ágætt hús fyrir
veiðimenn, þar sem þeir sjá um sig sjálfir.Áin rennur í vestanverðan Hrútafjörð.
Hún er engin afburðalaxá, aflinn er á milli 50 og 200 laxar á ári. Þegar skilyrði
eru góð, veiðast gjarnar stórir laxar.