|
Purkuvatn er í Vopnafjarðarhreppi í S.-Múlasýslu. Það er 0,28
km², grunnt og í 231 km hæð yfir sjó. Lítið vatn sést til þess renna, en
Purkulækur rennur úr því um Svínadal til Vopnafjarðar.
Vegur, fær flestum bílum, liggur alla leið að
vatninu, sem er í slakka milli tveggja hæða. Bleikjan í vatninu er sögð mjög væn.
Fjöldi stanga í vatninu á dag er ekki takmarkaður. Mikill fjöldi vatna er á
Sandvíkurheiði, s.s. Hundsvatn og Miðheiðarvatn, sem bæði eru við þjóðveg.
Vegalengdin frá Reykjavík er 640 km um
Hvalfjarðargöng og 14 km frá
Vopnafirði. |