|
Rekavíkurvatn er í Sléttuhreppi í N.-Ísafjarðarsýslu.
Það er 1,6 km², nokkuð djúpt og í 1 m hæð yfir sjó. Við suðausturenda þess er
Hálsavatn og Skammá á milli. Best er að komast að vatninu frá sjó að Látrum, sem
eru í eyði.
Vegur liggur þaðan yfir hálsinn til Rekavíkur, en
honum hefur ekki verið haldið við í lengri tíma. Þriggja stundarfjórðunga gangur
er þessa leið. Í vatninu er ½-4 punda bleikja og sjávarfiskar, þyrsklingur, ýsa og
síld. Ágæt veiði er líka í Hálsavatni. Fjöldi stanga er ekki
takmarkaður. |