|
Reykjadalsá fellur í Vestmannsvatn og Eyvindarlækur úr því og til
Laxár í Aðaldal.
Báðar eru góðar laxveiðiár og gefa
yfirleitt vel yfir 200 laxa á sumri hvor um sig.
Stundum fer sumaraflinn í á þriðja hundrað fiska
en mest 657 laxar 1978.
Núverandi leigutaki leggur
mesta áherslu á silungsveiðina og hefur sett reglur um að
sleppa skuli öllum laxi. Mun það að líkindum verða þeim
stofni að liði. Leyfð er veiði á 6 stangir í
senn. Veiðisvæðið tekur til bæði Eyvindarlækjar og
Reykjadalsár. Nánari umfjöllun má finna undir SILUNGSÁR.
Leigutaki er Pétur K.Pétursson
Lokatölur um laxveiði.
 |