|
Sauðanesvatn er í Sauðaneshreppi í N.-Þingeyjarsýslu.
Það er 0,18 km², 2-3 m djúpt og í 3 m hæð yfir sjó. Gunnlaugsá rennur í það og
úr því Litliós út í sjó. Gott er að komast að
vatninu, því það er við
bæjarvegginn á stórbýlinu Sauðanesi. Flugvöllur er skammt norðan
þess. Bleikjan og
urriðinn úr vatninu er mjög góður fiskur og sjógenginn. Stangafjöldi er ekki
takmarkaður. Ekki er vitað til að netaveiði sé stunduð í
vatninu. Vegalengdin frá
Reykjavík er 669 km (42 km styttri um Hvalfjarðargöng) og 8 km frá Þórshöfn. |