Selá vatnasvæði Skaga,
Veiðikortið 2013


Skilið veiðiskýrslum


SELÁ VATNASVÆÐI- ÖVESVATN
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

 

Vatnasvæði Selár nær yfir vötnin Ölvesvatn, Eiðsá, Fossvatn, Fossá, Stífluvatn, Grunnutjörn, Selvatn og Selá. Þau eru vestan Hvalsnes á austanverðum Skaga. Ölvesvatn er í Skefilsstaðahreppi í Skagafjarðarsýslu. Það er 2,8 km², nokkuð djúpt og í 169 m hæð yfir sjó. Selá rennur úr því til Skagafjarðar.

Veiðihús fyrir 6-8 manns er við vatnið. Ölvesvatn er í 6 km fjarlægð frá Hvalsnesi og Selvatn í 10. Vegaslóðar liggja víða um svæðið. Slóðinn að Ölvesvatni er fær fjórhjóladrifsbílum og jeppum að Selvatni. Veiðin er bleikja og urriði í svipuðum mæli. Best er að veiða í hægviðri í vötnunum en stundum er hægt að reiða sig á veiðina í ánum.
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.

Veiðivörður /umsjónarmaður á staðnum:

Bjarni Egilsson og Elín Guðbrandsdóttir, Hvalnesi, s: 453-6520


Vegalengdin frá Reykjavík er 376 km um Skaga og 366 um Sauðárkrók og Hvalfjarðargöng, um 40 km frá Sauðárkróki og 67 km frá Skagaströnd.

Yfir_Skagaheidina.jpg (62832 bytes)


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM