|
Grundarfjörður er vinalegur fiskibær á Snæfellsnesi. Þaðan
er stutt á góð fiskimið í Breiðafirði. Sjóstangaveiði er ekki ný bóla á
Grundarfirði og bátarnir eru vel búnir til þeirra.
Veiðimennirnir taka aflann með sér, ef þeir vilja.
Grundarfjörður er m.a. þekktur fyrir sérstakt fjall, sem teygir sig hlíðabratt til
himins, Kirkjufellið, eða Sykurtoppurinn , eins og Danskurinn kallaði það.
Grundarfjörður er á norðurhluta Nessins eins og allir stærri bæirnir þar.
Vegalengdin frá Reykjavík er 187 km um Hvalfjarðargöng. |