|
Ólafsvík er stærsti fiskibær á Snæfellsnesi og þaðan er stutt á
fiskimiðin í Breiðafirði. Sjóstangaveiði hefur verið stunduð lengi frá
Ólafsvík, svo að karlarnir þar geta fundið fiskinn í sjónum með bundið fyrir
augun.
Ósjaldan verða ýmsir hvalir á leið
bátanna, sem eru sérstaklega útbúnir til sjóstangaveiða með öllum veiðitækjum um
borð. Aflinn tilheyrir veiðimönnunum, ef þeir vilja taka hann með sér.
Ólafsvík er 196 km frá Reykjavík um Hvalfjarðargöng. |