|
Skjálftavatn er í Kelduhverfi í N.-Þingeyjarsýslu. Á
þessu svæði var áður sandur, sem Landgræðslan var búin að
græða upp og afhenda landeigendum. Árið 1974 urðu jarðhræringar í Kelduhverfi og landsig, þar
sem nýbúið var að græða upp. Myndaðist þá stöðuvatn, sem er með stærstu
vötnum landsins. Vatnið er u.þ.b.
4 km², fremur
grunnt (2½m) og í 15 m hæð yfir sjó. Vestur úr vatninu rennur Stórá gegnum Árneslón til
Axafjarðar. Vegasamband er gott, því að þjóðvegurinn (85) liggur meðfram vatninu.
Í því og Stórá er sjóbirtingur, ágætur fiskur. Eigendur stunda netaveiði í
vatninu. Vegalengdin frá Reykjavík er 534 km um
Hvalfjarðargöng og 50 km frá Húsavík.
 |