|
Þiðriksvallavatn er í Hólmavíkurhreppi í Strandasýslu. Það
er 1,45 km², dýpst 47 m og í 73 m hæð yfir sjó. Vegna vatnsmiðlunar getur hæðin
færst til um 6 m. Vestan þess er Þiðriksvalladalur, vel gróinn og
búsældarlegur. Við enda vatnsins í dalnum standa
eyðibýlin Þiðriksvellir og Vatnshorn. Þverá rennur úr því til
Steingrímsfjarðar. Hún er virkjuð.Góður akvegur liggur til vatnsins og
að nokkru meðfram því.
Umhverfið er mikið gróið og þykir fagurt.
Í vatninu er bæði bleikja og urriði, mikið magn af fiski. Það er í eigu
Hólmavíkurhrepps.
Fjöldi stanga er ekki takmarkaður og besta agnið er fluga og spónn.
Langt er síðan veitt var í net í vatninu. Vegalengdin frá Reykjavík er
320 km og 5 frá Hólmavík. |