Þuríðarvatn er ofan byggða Vopnafjarðar. Það er 1,2 km²,
dýpst 10,8 m og 416 m yfir sjó.Þuríðará fellur frá því til Hofsár.
Þjóðvegur 85 liggur meðfram því suðaustanverðu og umhverfið er mýrar og
mólendi. Mikið er af vatnableikju, ½-5 punda, í vatninu.
Vegalengdin frá
Reykjavík er um 591 km um Hvalfjarðargöng og 25 km frá
Vopnafirði.