|
Torfdalsvatn er í Skagahreppi í
Austur-Húnavatnssýslu. Það
er 0,6 km², nokkuð djúpt og í 52 m hæð yfir sjó.
Hafnalækur rennur úr því í Rekavatn.
Vegasamband er gott, því að þjóðvegurinn liggur með því
vestanverðu.
Mikið er af góðri bleikju í
vatninu og urriðinn er vænn. Lengi
var vatnið ekki nýtt vegna munnmæla um baneitraða öfugugga.
Eftir að netaveiðar höfðu verið stundaðar um tíma fór fiskurinn að stækka og braggast.
Vegalengdin
frá Reykjavík er u.þ.b. 292 km um Hvalfjarðargöng og 20 frá
Skagaströnd.
Sumarhús er til leigu rétt við vatnið.
S: 452-4163.
 |