|
Tungufljót er í Skaftárhreppi,
Vestur-Skaftafellssýslu. Upptökin eru nokkuð ofan byggðar og dragast til þess margir lækir á leið til ósa.
Umhverfið er mjög margbreytilegt, sums staðar hraun
og er fljótið allvíða í þröngum farvegi með grónum bökkum. Mjög margir góðir
veiðistaðir eru í Tungufljóti. Aðalfisktegundin er allvænn sjóbirtingur og hafa
veiðst fiskar yfir 20 pund. Lítið eitt veiðist af laxi í Tungufljóti. Þar
er þokkalegt veiðihús og veitt á 4 stangir á dag.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b.
245 km.
 |