Úlfljótsvatn er efsti hluti Sogsins á milli Írafoss- og
Steingrímsstöðvar. Veiðileyfin gilda fyrir landi Efri-Brúar. Það miðast við
Hamarsland sunnan Sakkarmýrar í suðri og norðanverðan Stapa í norðri.
Bestu veiðistaðir eru við Kvíanes og Stapa. Fjöldi veiðileyfa á dag er ekki
takmarkaður. Veiðin er mest vatnableikja og er mikill
fiskur í vatninu. Fiskur hefur orðið vænni í vatninu á síðustu
árum, eftir að
byrjað var að hleypa hlýju og áturíku yfirborðsvatni fram hjá Steingrímsstöð í
staðinn fyrir ískalt botnsvatn. Vatnið
er kennt við Úlfljót sem sagður er fyrsti lögsögumaður Íslendinga.
Við hann voru
Úlfljótslög kennd en þau voru fyrstu almennu lögin sem giltu hér á landi.
Úlfljótsvatn er um
7-8 km langt og um 1 km á breidd. Það er í 81 m hæð yfir sjó, dýpi
víðast undir 10 m en talið dýpst um 60 m í norðurhluta vatnsins.
Mikill straumur er í vatninu, þar sem Sogið fellur um það á 19 km
leið sinni frá Þingvallavatni til Hvítár.
Bærinn Úlfljótsvatn
er vestan við vatnið og þar spölkorn frá norðan við bæinn
stendur Úlfljótsvatnskirkja
á fögrum og sérkennilegum stað, dálitlum hól, sem gengur út í vatniðsem
vert er að skoða. Ýmsar sagnir tengjast Úlfljótsvatni og næsta nágrenni.
Þá hafa einnig fundist merkar fornminjar þar í nágrenninu.
Dráttarhlíð er háls milli Úlfljótsvatns og
Þingvallavatns, vestan útrennslis Sogsins. Nafnið mun tilkomið
vegna þess, að þar var góður ádráttarstaður í Úlfljótsvatni.
Norðan hálsins var fyrrum ferjustaður Skálholtsstaðar og austan vatns
var vöruhús hans. Göng voru gerð undir hlíðina og
Úlfljótsvatnsmegin var stærsta Sogsvirkjunin, Steingrímsstöð, reist
1956-59. Fallhæðin er 22 m og aflið er 27 MW. Við þessar
framkvæmdir dró mjög úr útrennsli Sogsins. Veiðikortiðgildir fyrir
landi Efri-Brúar,