|
Vatnamót er stórt vatnasvæði í Skaftárhreppi í
Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem margar ár og sprænur sameinast og flæmast um hraun
og sanda. Nokkrar ánna, sem til Vatnamóta falla, eru Breiðbalakvísl, Fossálar og
Skaftá.
Þetta er einstætt vatnasvæði er 8 km sunnan
þjóðvegarins. Útsýni til fjalla og jökla frá þessu svæði er tignarlegt. Stundum
veiðast stærstu sjóbirtingarnir í Vatnamótum. Það er ekki úr vegi að hafa
það í huga, að landslagið á þessu svæði breyttist verulega við Skaftárelda
árið 1783. Vatnamót eru veidd með fimm stöngum.
Vegalengdin frá Reykjavík er 290 km og 12 km frá
Klaustri.
 |