|
Litla áin í Vopnafirði, en jafn góð og stundum betri
miðað við meðalveiði á stöng. Veidd með þremur stöngum, fremur vatnslítil, og
eru um 15 kílómetrar laxgengir. Þykir fjölbreytt með afbrigðum.
Veiðin er sjaldan undir 250 löxum á sumri og fer upp í 400 í
góðu ári. Mikil sjóbleikja er oft meðafli og bjargar mörgum veiðitúrnum,
þegar laxinn er tregur. Nýtt veiðihús er við ána.
Leigutaki nú er "Vesturárdalur
ehf."
Nýlegt veiðihús er við ána í eigu
veiðifélagsins. Vesturdalsá er ein af svonefndum viðmiðunarám
Veiðimálastofnunar. Sjógönguseiði eru talin og merkt og vandlega
fylgst með endurheimtum þeirra. Oft er mjög góð sjóbleikjuveiði í ánni.
Sjá:
Lokatölur
síðustu ára.
 |