|
Víða um land eru
staðir og svæði utan alfaraleiðar, sem fáir hafa heimsótt - ekki nennt
að leggja lykkju á leið sína. Þeir, sem ætla að kynnast landinu sínu
í alvöru, láta slíkt ekki koma fyrir sig. Skaginn milli Húnaflóa og
Skagafjarðar er eitt þessara svæða, sem borgar sig að skoða nánar.
Landslagið þar er fagurt og minjar um forna búskaparhætti eru alls
staðar innan seilingar. Veiðivötnin eru
að mestu óplægður akur og mörg þeirra eru vel utan alfaraleiðar,
þannig að þar er ró og friður. Veiðimenn og fjölskyldur þeirra eru
yfirleitt fólk, sem nýtur umhverfisins ásamt veiðinni og gefur því
gaum. Í textunum um vötnin eru víða nánari lýsingar á umhverfinu,
hvernig færðin er að þeim og hve langt þau eru frá þjóðvegi.
.
|