|
Þau eru í Jökuldalshreppi í N.-Múlasýslu. Vötnin, sem hér
verður getið, eru þrjú og svo lík, að þeim verður að mestu lýst í sameiningu.
Stórhólmavatn er syðst, 0,93 km² og í 522 m hæð yfir sjó. Langhólmavatn er 0,84
km² og í 492 m hæð yfir sjó. Geldingavatn er 1,03 km² og í 494 m hæð yfir sjó.
Þau eru svo grunn, að þau gruggast í hvassviðri.
Stórhólma- og Langhólmavötn hafa afrennsli um Sauðá til
Hofsár í Vopnafirði, en Geldingavatn um Geldingalæk til Tunguár.
Akstursleið til vatnanna er léleg, en þó má skrönglast þangað á jeppa. Í
Stórhólma- og Geldingavatni er helst bleikja, en ekki er vel kunnugt um
fiskibúskap Langhólmavatns. Fjöldi stanga er ekki takmarkaður. Vegalengdin
frá Reykjavík um Norðurland er 598 km um Hvalfjarðargöng og 70-75 km frá
Egilsstöðum. |