SIGLING Á RÍN
2009
FJÖGURRA LANDA SÝN
HAUSTFERÐ 06.09.09. – 13.09.09.
ATH.  SÍÐUSTU FORVÖÐ AÐ PANTA!

FERÐATILHÖGUN
MYNDAALBÚM


Organized Tours

Ævintýraferðin með MS Bellissima liggur um Holland, vestur- og suðurhluta Þýzkalands, Frakkland og Sviss.
Landslagið við Rín er óviðjafnanlegt.  Litlir skurðir teygjast út frá fljótinu í Amsterdam og túlípanaakrar út að sjónarrönd.  Þá taka við vínekrur og kastalar frá miðöldum.
Þegar flatlendi Hollands sleppir, taka við kastalar Sjöfjalla, St. Goarshausen og Loreley.  Næsta landslagssvæðið er Rheingau sunnan Worms, þá Strassburg í Elsass og Basel í Sviss, þar sem siglingunni lýkur.
Skipið, sem siglir undir hollenzkum fána og var byggt árið 2004, skartar fjórum hótelstjörnum.  Það er 111 m langt, 11 m breitt og hýsir allt að 134 farþega.  Um borð er setustofa með bar, verzlun og mjög fallegur og reyklaus veitingasalur á efra þilfari.  Þaðan liggja nokkrar tröppur og stóllyfta fyrir fatlaða upp á sólþilfar með nuddpotti.
Allar 67 káeturnar bjóða útsýni frá aðal- og efra þilfari.  Þær eru þægilega innréttaðar með sturtu og salerni, hárþurrku, litasjónvarpi, öryggishólfi (gegn gjaldi), skipssíma, stillanlegri loftræstingu og tveimur rúmum, sem er breytt í sófa á daginn.  Káeturnar eru allar reyklausar og u.þ.b. 12 m2, nema svítan, sem er 24 m2.
Káetur á efra þilfari hafa allar franskar svalir og opnanlega útsýnisglugga.  Gjaldmiðilar um borð eru evra, master- og vísakort
.

1. dagur.

Flug frá Íslandi til Hollands / Amsterdam.
Víkingaslóðir bjóða rútuferð frá BSI til Keflavíkur.
Brottför frá BSÍ kl 05:00. Rútan stoppar fyrir alla, sem vilja taka hana á leiðinni til Keflavíkur, í Kópavogi, Garðabæ og Hafnafirði.
Mæting á Keflavík flugvelli fyrir klukkan 06.30.
Brottflug til Amsterdam kl 07:55.
Þegar komið er til Skiphol, klukkan 12:55 (staðartími), bíður rútan okkar fyrir framan flugstöðina og ekur okkur frá flugvelli að skipshlíð í Amsterdam.  Við göngum um borð þar sem okkur verður veitt hressing og nokkrar upplýsingar varðandi ferðinni til Basel í Sviss. Áhöfn skipsins sér um að koma farangri okkar fyrir í káetunum, sem var úthlutað, þegar ferðin var pöntuð.
Kvöldverður um borð.
Upplagt er að skoða næturlífið í heimsborginni Amsterdam eftir matinn.


2. dagur.

Amsterdam - Köln.
Amsterdam er höfuðborg Hollands með rúmlega 700.000 ibúa. Stærð borgarinna er um 130 ferkílómetrar, þar af eru 100 ferkílómetra land, en 30 ferkílómetrar er vatn og skurðir.  Nafnið Amsterdam er dregið af nafni  litillar eyju (dam) i ánni Amstel.
Eftir morgunverð verður farin bæjarferð um skipaskurði Amsterdam.  Síðan er hádegisverður um borð. Brottsigling frá höfninni í Amsterdam er klukkan 16:00, þannig að áhugasamir geta eytt meiri tíma í borginni.
Ferðin liggur um margar skipaskurði í Hollandi þar til við komumst út á Rín og áleiðis til Kölnar í Þýzkalandi.
Hádegisverður, síðdegiskaffi og kvöldverður verða um borð.
Um kvöldið er boðin létt tónlist og dans í setustofu.

3. dagur.

Köln – Koblenz.
Við komum til Kölnar um tvöleytið síðdegis. Eftir að skipið er lagzt að bryggju förum við í gönguferð. Við skoðum Kölnardómkirkjuna, sem er í gotneskum stíl.  Bygging hennar hófst árið 1248.  Hún er rómversk-katólsk og heitir réttu nafni Hohe Domkirche St. Peter og Maria. Mesta turnhæð hennar er 157 metrar.  Hún er næststærsta kirkja Þýzkalands á eftir Ulmer Münster, og hin þriðja stærsta í heiminum.
Eftir göngutúrinn er haldið um borð í kvöldverð. Örstutt er í miðborgina og frjáls tími gefst þar til skipið lætur úr höfn klukkan 23.00 um kvöldið og siglir áfram til Koblenz.

4. dagur.

Koblenz - Rüdesheim.
Við komum um áttaleytið til Koblenz. Íbúafjöldinn þar er nálægt 105.000.  Borgin hefur verið stórborg siðan 1962. Hún er einhver elzta borg Þýzkalands, varð 2000 ára 1992. Við siglum framhjá Deutsches Eck, þar sem Rín og Mosel mætast og styttunni af Þýzkalands-keisaranum Wilhem I (†1888), sem var komið á stall á árabilinu 1893 til 1897.
Skipið leggst að bryggju rétt hjá.  Þaðan er stutt að öllum torgum og verzlunargötum, því borgin er á árbakkanum. Brottför skipsins er klukkan 12:00 og
áfram verður haldið til Rüdesheim.

4. dagur.

Rüdesheim – Worms.
Siglingin til Rüdesheim tekur um
það bil 6 klukkustundir og verður landslagið stórfenglegra og fallegra eftir því sem sunnar dregur. Við sjáum kastala frá miðöldum, siglum framhja vínbænum St. Goarshausen, rétt hjá hinu 132 metra háa Lóreleyjarfjalli. Síðan taka við vínekrur meðfram ánni.  Við leggjum að bryggju í Rüdesheim klukkan 18:00, þar sem okkur gefst tækifæri til að bragða hinar gullnu veigar þeirra.
Við förum með  Winzer-lestinni að bænum Rüdesheim og skoðum tónlistarsafnið, síðan er hverjum og einum frjást að skoða næturlifið, þar sem brottför skipsins verður ekki  fyrr en klukkan 04:00 um nóttina!

5. dagur.

Worms – Heidelberg.
Við leggjum að bryggju kl 10:00 að morgni í borginni Worms, sem keltar byggðu. 
Worms er líka þekkt fyrir Niflungarsögu, sem borg Luthers og fyrir St. Peter dómkirkjuna, sem var byggð í rómönskum stíl samtímis kirkjunum í Speyer og Mainz. Þar er elzti gyðingakirkjugarður í Evrópu, frá árinu 1076. Flestir þekkja vínið Liebfrauenmilch, sem er framleitt í Worms. Þar stígum við upp í rútu og ökum til Heidelberg, sem er einhver elzta háskólaborg Evrópu.  Þar skoðum við kastalann og njótum frjáls tíma í gamla borgarhlutanum, þar til við verðum að halda til skipsins aftur, en brottför þess er klukkan 18:00.

6. dagur.

Elsass – Strassburg – Colmar.  Heill skoðunardagur.
Við leggjust að bryggju um áttaleytið í Strassbourg.  Klukkutíma síðar siglir skipið áfram til Breisach.  Gestir sem ekki vilja fara í þessa dagsferð með rútunni geta orðið eftir um borð. Við byrjum á bæjarferð í Strassbourg.  Sjáum byggingar
Evrópuráðsins, skoðum kirkjuna Liebfrauenmünster (Cathédrale Notre-Dame).  Siðan göngum við um gamla borgarhlutann með sínum fallegu, litríku húsum og síkjum, þar sem fólkið siglir líka um þessa yndislegu borg.
Við höldum áfram í gegnum vínhéruð Elsass til Colmar, þriðju stærstu borgar í Elsass með rúmlega 65.000 íbúa. Við sjáum stærstu kirkjuna í Colmar, Martin Dom (byggð 1230-1370). Í Colmar finnum við mörg mikilvæg borgarahús frá miðöldum og endurreisnartímanum. Einhver fegursti borgarhlutinn er kallaður Litlu-Feneyjar við ána Lauch.
Að kvöldi dags ökum við til Breisach, sem er 20 km frá frönsku landamærunum.  Þar bíður okkar góður kvöldverður og skemmtun um borð.

7. dagur.  25.05.09.

Breisach – Basel.
Landfestar verða leystar klukkan 07:00 um morguninn.  Áfram verður siglt upp Rín og í gegn um margar slaufur.  Það eru margar slíkar í þessari ferð, því hæðarmunur frá Amsterdam til Basel eru um 400 metrar. Við komum til Basel um tvöleytið síðdegis.  Hún er þriðja stærsta borg í Sviss með 170.000 íbúa. Borgin Basel er kölluð Þriggjalandahornið, vegna þess að hún er í Sviss, og liggur að Þýzkalandi og Frakklandi!  Bæjarferð okkar hefst frá höfninni St. Johann.
Við skoðum m.a. dómkirkjuna Baseler Münster, sem var byggð á árunum 1019–1500.  Þá sjáum gamla, þýzka járnbrautarstöð, sem heitir Badischer Bahnhof.  Þaðan hefjast allar ferðir frá Sviss til margra áfangastaða í þýzkalandi. Einnig sjáum við hluta af gömlum borgarmúrum, sem umluktu borgina fyrr á öldum. Þrjú falleg borgarhlið standa enn þá, Spalentor (tvíturna)
, St. Johann Tor og St. Alban Tor.
Eftir bæjarferðina förum við aftur að skípinu.  Eftir morgungverð næsta morgun bíður áhöfnin okkar eftir því að getað farið með töskurnar frá borði að rútunni. Framundan er tveggjaoghálfsdags ferð um Suður-Þýzkaland.
Kvöldverður er um borð í skípinu, en kvöldið er frálst.
Þetta er síðasta nóttin um borð.

8. dagur.

Frá Basel er ekið um Rínarfossa og Stein am Rhein, gamla borg með fallegum bindingshúsum, þar sem Rín rennur úr Bodenvatni.  Þaðan er ekið til síðasta náttstaðar í Svartaskógi.











9. dagur.
Eftir morgunverð förum við til Frankfurt við Main og út á flugvöll.
Ferðinni er heitið heim til Íslands.
Víkingaslóðir bjóða rútuferð frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur (BSÍ - Umferðarmiðstöðin).
Væntanlegt brottflug frá Frankfurt er klukkan 14:00
Komið til Keflavíkur um klukkan 15:30, ef áætlun stenzt.






Innifalið í ferðinni:

Flug og flugvallarskattar, Keflavík-Amsterdam og Frankfurt-Keflavík.
Akstur frá Skiphol-flugvelli að skipi.
Sjö nátta ferð með MS Bellissima í reyklausum tveggja manna káetum í samræmi við bókun.
Fullt fæði, morgunverðarhlaðborð, hádegis- og kvöldmatur, sem hefst með kvöldverði og fordrykk fyrsta kvöldið um borð og endar með morgunverði síðasta daginn.  Galakvöldverður eitt kvöldið.
Tónlist í setustofu á hverjum degi.
Hafnagjöld.
Leiðsögumaður, leiðsaga á íslenzku
Stutt gönguferð um miðbæ Kölnar.
Skoðunarferð í Rüdesheim.
Ferð með Winzer-lestinni og heimsókn í Siegfried-tónlistarsafnið.
Skoðunarferð frá Worms til Heidelberg með rútu.
Rútuferð um miðbæ Strassbourg og vínleiðina í Elsass til Colmar.
Rútuferð um miðbæ Basel.
Ein gistinótt í þýzkalandi, með baði, kvöldverði og morgunverði.
Eins og hálfsdags rútuferð með leiðsögumanni frá Basel til Frankfurt.
Íslenzk fararstjórn
Rútuferðir til og frá Keflavíkurvelli fyrir brottflug og eftir heimkomu.

Verð:

Gisting í tveggja manna káetu á aðalþilfari og einnar nætur gisting í þýzkalandi m/baði  ikr. 202.724.-.
Gisting í tveggja manna káetu á efraþilfari og einnar nætur gisting í Þýzkalandi, m/baði  ikr. 215.924.-.
Gisting í einsmanns káetu á aðalþilfari og einnar nætur gisting í Þýzkalandi m/baði  ikr. 255.524.-.

Tilgreind verð eru með fyrirvara um skatta- og gengisbreytingar (tilgreind verð miðast við 120.- kr. gengi evru).

Ekki innifalið:
Drykkir og þjórfé.

Nauðsynlegt að vita:
Komu- og brottfarartímar og -staðir eru í ferðagögnum.
Tímaáætlanir geta breytzt vegna biðtíma við slaufur, vatnshæðar í fljótinu, sjávarfalla eða annarra siglingaraðstæðna.
Hádegisverður í skoðunarferðum er nestispakki frá skipinu.


Víkingaslóðir ehf., Fannafold 165, 112 Reykjavík, sími 567-2288, fax 567-2280 og netfang vikingaslodir@islandia.is - Um okkur.

 
  MYNDAALBÚM


Ferðaheimur

.

Víkingaslóðir ehf., Fannafold 165, 112 Reykjavík.  Netfang:  vikingaslodir@islandia.is - www.vikingaslodir.is - Um okkur
TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- Um okkur - Heimildir          HEIM