Vegalengd
u.þ.b. 13-14 km.
Tími: 6-7 klst.
Fremur auðveld ganga.
Kambur
er sérstakt og áberandi fjall á nesinu milli Reykjarfjarðar og Veiðileysufjarðar.
Upp úr Kambinum rísa þverhníptir tindar, sem álengdar minna á tröllagreiðu.
Ekki er bílfært fyrir Kamb en á þessari leið er margt að sjá.
Gott er að hefja gönguna uppi á Veiðileysuhálsi, þar sem gott er að
leggja bílnum.
Eins væri hægt að fara rólega og gista eina nótt í tjaldi
úti við eyðibýlið Kamb. Ganga kringum Kamb er fremur auðveld og við
hæfi allra fjölskyldumeðlima.
Gengið
er niður af Veiðileysuhálsi og sneitt niður Hjallana þar til komið
er niður undir sjóinn rétt utan við norðanverðan botn Veiðileysufjarðar.
Samkvæmt þjóðsögunni er nafn fjarðarins
þannig til komið að kerling nokkur sem Kráka hét missti tvo syni sína
í róðri á firðinum. Lagði hún þá á fjörðinn að þar myndi aldrei framar
fast bein úr sjó. Það
þykir hafa gengið eftir.
Gengið
er út með firðinum eftir greinilegum slóða um svæði sem
einkennist af undarlegaum sandsteinsmyndunum. Þar er upplagt að stansa,
gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn um tíma og virða fyrir sér
listaverk náttúrunnar. Utarlega á nesinu stendur eyðibýlið Kambur.
Neðan þess, við sjóinn, er gamall stekkur þar sem upplagt er að
tjalda ef menn ætla að stoppa lengur. Á Kambi var búið til ársins
1954 og húsið stendur enn. Í grennd við bæinn er grjótdysin Spænskradys.
Þegar
gengið er áfram, breytist landslag lítillega og komið er að Látrum.
Þar nýttu Kambsbændur engjar. Frá Látrum var útræði
fyrrum og þar er talsverður reki.
Nú
opnast útsýni inn Reykjarfjörð. Til vinstri rís mikil klettaborg með
ótal glufum og gjám og miklu fuglalífi. Gatan breikkar og að hluta
er hún hlaðin hönduglega yfir mestu farartálmana. Inn í ströndina
skerast ótal litlar víkur og komið er að eyðibýlinu Halldórsstöðum.
Ekki er vitað með vissu, hvenær bærinn fór í eyði.
Úr
landi Halldórsstaða byggðist verslunarstaðurinn Kúvíkur sem um 250
ára bil var eini verslunarstaðurinn á Ströndum frá því um aldamótin
1600. Þar voru um tíma tvær verzlanir og heimavistarskóli var rekinn
þar einn vetur (1916). Þar má ennþá sjá merki umsvifanna, til dæmis
pott þar sem hákarlalýsið var soðið í og tóftir sem gefa hugmynd
um skipulag kaupstaðarins. Frá Kúvíkum er gengið upp á þjóðveginn
og með honum upp á Veiðileysuhálsinn á ný.
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar!
Mynd: Kambur og Veiðileysufjörður
|