Lambhús var hjáleiga frá Bessastöðum á
Álftanesi. Fyrstu opinberu stjörnuathuganirnar hérlendis voru gerðar
þar. Árið 1772 var Eyjólfur Johnsonius, stjarnfræðingur , var
skipaður stjörnuskoðari með aðsetur að Staðarstað á Ölduhrygg
á Snæfellsnesi. Þegar þær áætlanir fóru út um þúfur, var hann
settur niður á Lambhúsum á Álftanesi og bygging stjörnuturns var
hafin.
Hann varð skammlífur í starfi, því hann dó árið 1775.
Rasmus Lievog, norskur stúdent, var skipaður í hans stað og settist
að á Lambhúsum 1780. Hann gerð margs konar stjörnumælingar,
ranssakaði skekkju segulnálar og mældi sjávarföll. Hann gerði
einnig uppdrætti af stöðum umhverfis Bessastaði, s.s. Reykjavík.
Rannsóknarstöðin var lögð niður eftir að hann fluttist burtu
árið 1805.
Söguslóðir Suðvesturland |